28júlí

Í Kína borđum viđ ađeins meira en bara pítsu!

Hæhæ,

Búið að vera dáldið mikið að gera og þegar það er ekki bilað að gera þá er ég bilað þreytt.

Nú er skólinn búinn og einungis 4 dagar þangað til ég kem heim og 2 dagar af þeim í Kína...

Það sem ég er búin að brasa síðustu daga...

* Við Ásdís fórum í sundlaugagarð þar sem var klukkutímabið í hverja rennibraut þannig að við fórum bara í eina... Lágum á bakinu í risa öldulaug á grunna svæðinu, rosa þægilegt þangað til við sáum nokkur smábörn pissa í laugina!!
- Þetta er mjög algengt, krakkar eru ekki með bleiju hérna heldur eru í fötum sem eru opin að neðan og stundum engum nærbuxum og pissa bara hvar sem er og kúka!! Í metro, á markaðnum... name it.
- Í garðinum tókum við eftir að mömmur eru oft ekki góðar við börnin sín heldur eru þær snarbrjálaðar og börnin fela sig bakvið pabbann. Í skiptiklefanum sáum við ótrúlega sæta 3ja ára stelpu ca. sem var þvílíkt blá og marin yfir allan rassinn, ekki blettur sem var ekki blár. Eftir þetta höfum við tekið eftir fleiri börnum sem eru blá á rassinum eftir gríðarlegar rassskellingar mæðra.
- Sundoutfit Kínverja eru um margt fyndin... gaurarnir eru í þröngum buxum sem þeir hífa langt yfir nafla og konurnar og stelpur á mínum aldri eru flestar í pífusundkjólum með smá skálmum.

* Við fórum í bæ sem heitir Wuzhen og er vatnabær, Feneyja-like... Mjög fallegt en ALLT OF MIKIÐ af kínverskum túristum og túristaguidarnir voru að gera hvern mann vitlausan það voru svo mikil læti í þeim. Ég hélt fyrir eyrun á tímabili. Einnig átti þetta að vera gamalt og fallegt en local liðið hafði það greinilega gott út af túristunum og á einu heimilnu var risa flatskjár meðal alls hins hrörlega þar.

* Einn seinnipart skelltum við okkur í Wild animal park, vorum svo sein að eftir meira en klukkutímaferð út í óvissuna þá höfðum við tæpa 2 tíma að klára RISASTÓRAN dýragarð í 40 stiga hita. En það sem hjálpaði okkur var að ENGINN var í garðinum nema við.
Við sáum:
geggjaðar kengúrur hoppandi
hlekkjaðan frekar pirraðan fíl á stígnum
frekar óhrjálega strúta að borða plast frá túristum
endalausa lemúra sem voru lausir í kringum okkur og meðal þeirra var lítill kettlingur í litlu búri og hann vældi og vældi.
úlfalda sem Ásdís fór á bak á.
óhamingjusaman lítill björn sem átti að gera listir fyrir okkur en var ekki alveg til í það sökum hita og hann var pyntaður.
PÖNDUR sem voru sætar en inn í búrinu sínu út af hita.
górillur sem voru líka ótrúlegar
apa sem hentist á milli greina eins og í bíómyndunum :)

Eftir allt þetta frekar non-wild fórum við í villta hlutann þar sem við þurftum að keyra í rútu. Þar voru hvít tígrisdýr, ljón, sebradýr og alls konar nema bara í tugatali ekki einn eða tveir eins og í öðrum görðum.

* Fjölskylduheimsóknin. Við fórum með skólanum í heimsókn til fjölskyldu, við Ásdís fórum á sitthvorn staðinn og upplifðum þetta mjög ólíkt. Ég var óheppin og fór heim til kínverskrar stelpu sem er að kenna sænsku í Shanghai. Nema að þetta var hennar heimili, mjög venjulegt, engin fjölskylda og við sátum bara í 3 klukkutíma og létum okkur leiðast. Ég kom heim kl. hálf 4 en Ásdís kom kl. 7 eftir rosa te-seremóníu, 15 rétta máltíð þar sem hún lærði að gera dumplings og hitti risa fjölskyldu... smá öðruvísi.

* Visit to the shacks. Í síðustu vikunni fórum við í slæmu hverfin, sem eru raunverulega fátæku hverfin en ekki endilega slæmu hverfin. Það var rosalegt og eiginlega fyrsta kúltúrsjokkið sem ég fékk þar enda búin að taka öllu öðru með opnum huga. Þar var fólk með sameiginlegt opið salerni þar sem það pissaði fyrir allra augum, meðal annars okkar og skeit...! Þetta var opið út á þrönga götuna sem við löbbuðum milli húsa og þið getið ímyndað ykkur hvað lyktin var ógeðsleg! Maður var liggur við farinn að vona að þetta fólk yrði búflutt bráðlega sem er gert stanslaust af yfirvöldum... Yfirvöld eru ekki hrifin af "the shacks" og byggja frekar blokkir fyrir fólkið og rukkar það um leigu. Á göngu okkar um þröngt hverfið fórum við um matarmarkað þar sem við sáum eina konuna sjóða lifandi hænu með fiðrinu og öllu á og hræra í!!! Hrátt kjöt allt í flugum til sölu og álar sem voru alltaf að sleppa úr pokanum og sko úff þetta var rosalegt. Maður var alla vega rosa feginn að vera búinn með þennan part af ferðinni.

* Fugla- og blómamarkaðurinn. Vá við Bjarni fórum á fugla- og blómamarkað í gær eða rétta sagt hunda/katta/fugla/íkorna/fiska/kanínu/hamstra/skjaldböku/pöddumarkað... Ógeðslegar pöddur til sölu og fólkið að kítla þær til að vita hvort þær væru ekki sprækar áður en þær voru keyptar, hef ekki hugmyndaflug í að vita hvað liðið ætlar að gera við þessar pöddur. Ég fann reyndar hund sem mig langaði í... ótrúlega sætur, var reyndar farin að klóra og leika í hundinum áður en ég fattaði að hann gæti verið með flær... Bjarni ákvað að snerta mig ekki næsta klukkutímann þangað til ég væri búin að spritta mig nóg hehe... Engisprettur eru rosa vinsælar hérna, fólk hefur þær heima hjá sér því það er hrifið af látunum í þeim og eitthvað... mér finnst þær bara ógeðslegar! Þetta var ótrúlega skemmtilegur markaður en hjartanu var örlítið létt þegar við kláruðum markaðinn.

Kínverjar:
- ...eru þvílíkt lélegir í ensku, einn strákur ætlaði að biðjast afsökunar um daginn og segja excuse me... en hann sagði execute me!!! Frekar fyndið! :) Lobby-stelpurnar hérna á hótelinu eru engu betri í ensku og ég hef ótal sinnum þurft að kvarta undan sama hlutnum því þær þykjast skilja og svo skilja þeir bara ekki rassgat.
- ...eru þvílíkt loðnir undir höndunum og þá aðallega konur, held að það sé alveg hægt að hætta að alhæfa þetta um Þjóðverja. Stelpur á mínum aldri hérna eru bara með hvert eitt og einasta hár þarna ennþá... Þær eru þó heppnar að þeim virðist ekki vaxa hár á fótleggjunum...
- ...snýta sér ekki eins og Finnarnir (sem er btw. rosalega ógeðslegt, ein gellan í skólanum var komin með fjall af horpappír á borðið sitt) heldur ræskja þeir sig rosalega og losa horið út með skyrpi, whereever, whenever... jafnvel bakvið þig, í og á rúllustigann.
- ...eru mestu frekjur þess heims sem ég hef upplifað. Bera enga virðingu fyrir náunganum og tillitssemi er eitt af þeim orðum sem gleymdist að kenna kínverjum. Ryðjast fram fyrir í röð og hrinda þér ef þeir þurfa... og það er alltaf sagt að það sé collectivism hérna og fólk hugsi vel um þá sem eru sér næstir... ég held að það sé bara bullshit.
- ...eru ekki verri en Ítalir að keyra en koma fast á eftir... Búin að lenda í einum árekstri á leigubíl!
- ...eiga ekki til venjulegan lauk, mér finnst það bara stórmerkilegt.


Myndavélin mín bilaði og ég gleymdi að fá myndir frá Ásdísi áður en hún fór heim. Set inn myndir við fyrsta tækifæri.

Kv. Soffía ferðalengja
28. júlí 2009 klukkan 03:32
Isafold
2 athugasemdir
10júlí

Í Kína spiser vi pítsa

Að morgni fyrradags byrjuðum við í Tai Chi fyrir utan aðalbygginguna í 40 stiga hita og rosa raka. Þó að Tai Chi sé róleg íþrótt þá svitnuðu allir eins hratt og svitakirtlarnir réðu við. Tai Chi er rosa sniðugt og raunverulega góð hreyfing. Góð kjarnaæfing :) sem hægt er að yfirfæra yfir í sjálfsvörn. Við vorum í tvo klukkutíma í Tai Chi!!

Eftir hádegið fórum við á tvo fyrirlestra. Annan hjá norskum prófessor sem stamaði meira eftir því sem leið á fyrirlesturinn og þegar stamið var sem mest þá skippaði hann bara orðunum sem hann stamaði á og fór yfir í næsta. Við tók fyrirlestur um kínversk stjórnmál hjá frægum kínverskum prófessor sem hefur unnið mikið í USA en er núna aðallega að vinna í Kína. Hann heitir D. R. Zhou. En helmingurinn af liðinu hérna heitir Zhou og hinn helmingurinn Wang.

Um kvöldið var skipulagt karókí-kvöld. Við fórum fyrir kl. 5 á risastórt hótel nema það var ekki hótel heldur bygging með endalausum karókí-sölum. Örugglega helmingi stærra en Nordica og endalaus karókí-herbergi. Við fengum að borða þar og drekka eins og við vildum. Og syngja karókí eins og við vildum. Feimnir skandinavar létu ekki segja sér það tvisvar eftir að finnski kennarinn okkar (Mikael) hafði lokið sér af, fjögurra laga seríu, þar sem hann lifði sig súper inn í lögin. Ef kínversk stjórnvöld leyfðu youtube þá myndi ég setja myndband af honum inn. Geri það bara þegar ég kem heim :) Við Ásdís vorum svo penar með áhugann á skólanum en ekki fylleríinu að við fórum mjög snemma heim eftir að hafa sungið þrjú karókí-lög :D og komið liðinu í stuð.

Morguninn eftir átti Mikael kennarinn að byrja að kenna okkur eftir smá kínverskukennslu en þegar tíminn hans átti að byrja var enginn Mikael. Kínverskukennarinn hringdi í hann og þá var hann ennþá sofandi. Hann kom hálftíma of seint, hafði víst verið að djamma til 6 og einokað microfóninn í öllum 5 karókíherbergjunum sem við vorum með. Kennarinn ákvað fyrst hann kom svona seint að taka hálftíma af matarhlénu okkar, þvílíkt ósanngjarnt þannig að ég fór út, því Ásdís var að bíða eftir mér en hún er á hinni námslínunni og í öðrum tímum.
- Í tímanum skall einn nemandinn í gólfið, skórnir hans hentust af honum og borðið hans datt í sundur. Hann stirðnaði allur og froðufelldi. Var grænn í framan og starði bara út í loftið. Og svo þegar hann lagaðist mundi hann ekkert eftir því að hafa dottið í gólfið. Óhugnarlegt en ég held að hann hafi ofþornað!

Eftir mat byrjaði: Media in China tíminn. Mjög áhugaverður en allir voru svo brjálæðislega þunnir og þreyttir, fyrir utan mig og Ásdísi, við vorum reyndar þreyttar en það er bara af því að við erum alltaf þreyttar, vegna hita og álags. Kennarinn sem kenndi þetta er sérfræðingu í Media og Human rights í Kína frá Lund University. En í dag hélt hún einmitt fyrirlestur um Human rights.

Eftir tímann fórum við Ásdís og keyptum þvottabala, snúru og klemmur og þvottastykki/sápu, china-style. Síðan ákváðum við að skella okkur í Fudan University sundlaugina. Hún er hjá rosalega flottum íþróttavöllum í eigu skólans. Þvílíkt flottur frjálsíþróttavöllur, tennisvellir, fótboltavöllur og fleira. Við komum inn í sundlaugina og við þurftum að kaupa miða. Föttuðum hvar á endanum. En á 12 fm svæði voru 10 starfsmenn og enginn kunni ensku. Á þessu sama svæði þurftum við að fara í physical þar sem púlsinn á okkur var mældur. Við föttuðum það á endanum, þurftum að fylla út skírteini á kínversku. Komumst loksins í sundið og þar mættu okkur full stór sundlaug af kínverskum karlmönnum sem störðu allir á okkur. Það voru engir bekkir, bara pakkfull sundlaug af kínverjum. Við meikuðum þetta í 20 mínútur og forðuðum okkur svo í köldu sturturnar og ógeðslegu gólfin. Þegar við komum upp á herbergi fórum við aftur í sturtu okkur fannst við svo skítugar. Við drifum okkur að taka okkur til og skutluðumst upp í skóla þar sem við fórum í rútur og í siglingu á Huangpu river. Mikil mengun og mistur. Glitrandi háhýsi og rússneskt álítandi bátar sem hriktust áfram.

Nú erum við komnar heim og ætlum í háttinn því á morgun er stór túristadagur :)

Set bráðlega inn myndir hér, þar sem facebook er ennþá í ónáðinni hjá kínverskum stjórnvöldum.
10. júlí 2009 klukkan 16:10
Isafold
7 athugasemdir
07júlí

Platađar!

Þann 22.júlí að morgni í Shanghai verður sólmyrkvi! Hlakka til :D

Byrjuðum daginn á tíma hjá kennara við Fudan University sem ákvað að í stað þess að vera með uppbyggilegan og áhugaverðan fyrirlestur um sögu Shanghai þá var hann með standup í 2 klukkutíma sem svona 3 skildu! Hann sagði að útlendingar ættu ekki að stunda kynlíf með Kínverjum því þeir væru flestir með HIV. Einnig sagði hann að það væri hægt að kaupa sér "licking massage" from head to toe. Hann bara bullaði og var frekar kjánalegur.

Eftir hádegið og flýtipítsu á Salabim (norskum stað :)) þá mættum við sveittar rétt áður en rútan átti að fara, þurftum að hlaupa í 30 stiga hita og 100% raka. Rútan fór með okkur á Shanghai museum sem var bara mjög skemmtilegt með flottri safnabúð þar sem ég keypti nokkrar myndir og ætla að fara aftur að kaupa mér meira dót. Ofboðslega fallegar myndir og málað keramik voru á safninu. Meira að segja Ásdís, sem finnst söfn leiðinleg, náði að skemmta sér í 3,5 tíma.

Strax eftir safnið var Ásdís plötuð til að kaupa póstkort og síðan hittum við 3 kínverskar stelpur sem voru bara rosalega skemmtilegar en akkurat núna kl. 10 að kveldi vorum við að fatta að þeir voru con-artists... Fengu okkur til að kaupa rándýra miða á low class acrobat sýningu. Við ætluðum sem sagt með þeim. Héldum að þær væru líka túristar og þær tóku stórleik á þetta, rosalega góðar. En þær mættu ekki! En þessi sýning var flott en víst ekki eins flott og þessi alvöru aðal sýningin. Sem betur fer var þetta minniháttar mistök en ekki það að neinn hafi stolið frá okkur.

Erum komnar inn á herbergi dauðþreyttar eftir daginn...

Kemst ekki inn á facebook, kínversk stjórnvöld hafa greinilega ákveðið að loka facebook í smá tíma.

báibai, Soffía

Btw. í kvöldmatinn í gær fengum við græn egg í glærbrúnu geli, skelfisk í ógeðis hlaupi, soðna heila, heilan fisk með augu, léttsoðið beikon í súpu, fitukubbar og í þetta skiptið fengum við hrísgrjón. Já og sólin virkar ekki í Kína.
07. júlí 2009 klukkan 14:19
Isafold
2 athugasemdir
20janúar

Taka 375

Enn einu sinni ætla ég að reyna að byrja að æfa aftur. Búin að fara á tvær æfingar og hlakka til að fara í dag!! Keypti nautaleður og ætla að búa mér til lyftingabönd :)

Skólinn byrjaði síðasta fimmtudag og ég hlakka ekki eins mikið til að mæta í skólann á eftir eins og ég gerði alla síðustu önn. Einkunnir voru ágætar enda lærði ég eins og motherfocker... En máltækið að uppskera eins og maður sáir stenst ekki alveg í þessu mastersnámi. Gæti hreinlega ekki sáð meira þó ég vildi en uppsker alls ekki eins vel.

Svo á ég afmæli eftir 10 daga og verð hreinlega allt of gömul, vildi að ég hefði staðið í stað 23 ára...
20. janúar 2009 klukkan 10:57
Isafold
Engin athugasemd
04desember

RISAVERKEFNI

Loksins búin að skila þessu 50% verkefni en í heildina var það 91 BLAÐSÍÐA!!!!! Einstaklingsverkefni, eigum við eitthvað að ræða það???

Er dauðdauðdauðdauðdauðdauðþreytt.. og þarf að byrja snemma í fyrramálið að læra undir alþjóðamarkaðssetningu sem ég er ekkert búin að lesa í... :S
04. desember 2008 klukkan 22:05
Isafold
1 athugasemd
03desember

Djöfuls djöfull

Djöfull er þetta leiðinlegt!! Eruð þið að grínast hvernig gat ég gleymt því? Og þetta er þúsund sinnum það... Aaaaaaaaahhhhhhhhhh...... jólafrí, ég elska þig

Hef aldrei verið svona búin og heilalaus, þreytt og ómöguleg í nokkra mánuði.

:( mig langar bara að horfa á Línu langsokk með Fanneyju, hlusta á jólalög og sauma eitthvað. Já og hitta vini mina ef þeir kalla sig ennþá vini mína. Já og fara í sund með Bjarna og horfa á video og bara almennt hafa tíma til að kyssa hann :)

Ég á ekkert líf.
03. desember 2008 klukkan 21:50
Isafold
2 athugasemdir
01nóvember

Útsofin...

Vá... ég svaf í heila 8 og hálfan tíma og er ekkert smá fersk að læra... Var alveg búin eftir síðustu tvær vikur og gat ekki einbeitt mér í gær yfir öllum verkefnunum en núna er nýr og betri dagur og ég er komin á fullt...

Ég er mjög spennt yfir lokaritgerðarhugmyndinni minni og hlakka bara til næsta sumars að hella mér í hana... Það verður samt ekki gefið upp hvert efnið er svo engum öðrum "detti þetta í hug" :)

Ef einhver var ekki búinn að sjá síðuna mína www.wilde.is kíkiði endilega :D

Hlakka til aðfangadags, sé ekki fram á slökun fyrir þann dag.

Jeres Sofie...
01. nóvember 2008 klukkan 12:12
Isafold
Almennt
1 athugasemd
03október

Svo fatlađ....

Besta land í heiminum er orðið eitthvað svo fatlað eitthvað að ég næ ekki upp í það...

Það er kvartað undan litlu fangelsisplássi á Íslandi og þeir vilja stærri/fleiri fangelsi - AFHVERJU ERU HELVÍTIS ÚTLENDINGARNIR SEM BRJÓTA AF SÉR EKKI SENDIR HEIM. VITA EKKI ÞEIR SEM RÁÐA  AÐ ÞEIM FINNST ÞETTA VERA LÚXUS????? VILJA ÞEIR SEM RÁÐA BARA AÐ ÚTLENDINGAR SEM RÆNA, RUPLA OG NAUÐGA GETI KOMIST UPP MEÐ ÞAÐ? Gerið Ísland betra og sendið þetta lið heim (þá er ég bara að tala um þá sem bróta af sér)!!!!

Afhverju fá þeir sem nauðga og drepa bara nokkur ár í fangelsi - það á að geyma þetta lið þarna fimmfalt lengur!!! Afhverju sér það enginn, það minnka ekki brotin nema það sé mjög hart tekið á þessu. Þetta krimmalið tekið lífið frá öðrum og svo fá þeir annan séns!!! Heimska lið!

Maður þorir ekki lengur niður í bæ því það gæti verið að maður myndi labba fram hjá útlendingi sem vill sparka í hausinn á manni eða eiturlyfjaneitanda sem langar allt í einu að berja einhvern... eða sparka í klofið á einhverjum og rífa allt í sundur hjá einum karlmanni sem ég heyrði um... það gerðist um daginn. Viðkomandi getur líklegast ekki pissað almennilega eða eignast börn...


to be continued...
03. október 2008 klukkan 12:33
Isafold
3 athugasemdir
25ágúst

Ný leiđ og margt endurkannađ...

Veturinn mun einkennast af 4 hlutum...

Í fyrsta lagi mun ég byrja í Háskólanum aftur og klára mastersnám í stjórnun og stefnumótun á einu ári...


Í öðru lagi mun þjálfunin vera mjög stór partur af lifi mínu og mun ég reyna að bæta mig mikið sem þjálfari og auka við hæfni mína.

(ÍR-hópurinn minn allur vann 5 titla af 6 á tveimur meistaramótum 11-14 ára og 15-22 ára, ég var með 13-16 ára)

Í þriðja lagi þá ætla ég að verða spjótkastari aftur... ég veit að ég get kastað miklu lengra en ég hef gert hingað til! Smá Ólympíuandi kominn í mann...

Í fjórða lagi ætla ég að hanna föt í vetur og stefni á að opna heimasíðuna www.wilde.is á næstu dögum.

(Hægt er að sjá myndir af fleiru sem ég hef gert inni á myndasíðunni)


Hlakka rosa til vetrarins :D
25. ágúst 2008 klukkan 19:54
Isafold
8 athugasemdir
11ágúst

Leikari...?

Það sem ég er að gera á hverjum degi 10-12 tíma á dag er.... að leika í sjónvarpsþáttum :) og það verður skemmtilegra með hverjum deginum sem maður bíður minna :)... Fékk meira að segja að fara í spes búning í dag!!! heehhe

Soffía sem safnar í reynslubankann á hverjum degi...
11. ágúst 2008 klukkan 22:44
Isafold
2 athugasemdir

Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Atburđarteljari

Könnun

Ţessi eđa blog.central?

Leit

Innskráningar kubbur